Málþing og listamannaspjall í tilefni sýningarloka

Sunnudaginn 8. febrúar var haldið málþing og listamannaspjall í tilefni sýningarloka Viðbragðs í Listasafninu á Akureyri.

Athygli var beint að skapandi viðbrögðum sem grundvallareiginleika lífs, og að mikilvægi listarinnar þegar tekist er á við breytta heimsmynd vegna loftslagsbreytinga og annarra umhverfisógna.

Auður Aðalsteinsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit, sem var sýningarstjóri ásamt Þórdísi Aðalsteinsdóttur, sagði frá tilurð sýningarinnar og visthverfum áherslum verkefnisins Viðbragð / Creative Responses. Hún sýndi einnig myndir frá samfélagstengdu verkefni þar sem listamaðurinn Hrafnkell Sigurðsson skapaði útilistaverk úr fundnu efni í Mývatnssveit og vann skúlptúra með nemendum í Þingeyjarskóla.

Skúli Skúlason líffræðingur, sem skrifaði inngang sýningarskrárinnar ásamt heimspekingnum Ole Martin Sandberg fjallaði um skapandi viðbrögð sem forsendu alls lífs.

Þrír listamenn sýningarinnar tóku svo við og spjölluðu um hugmyndirnar að baki verkum þeirra. a Snæfellsjökuls rawlings sagði frá verkinu Motion to Change Colour Names to Reflect Planetary Boundary Tipping Points (2025) og skrifaði í votta viðurvist undir tillögu sína um að breyta litanöfnum þannig að þau endurspegluðu betur veruleika loftslagsbreytinga. Gestum var boðið að endurnefna sjálfir liti og taka með heim. Meðal litanafna sem urðu til voru „bráðnandi jöklablár“, „golfstraumslaust frost“, „útfrymisógn“ og „vonar mjúkur“.

Hildur Hákonardóttir sendi myndband frá Reykjavík þar sem hún sagði frá hugmyndinni að verki sínu Sköpun (2025), þar sem viskugyðjan er í lykilhlutverki: „Sófía reyndist vera móðir allrar sköpunar og tákn þeirrar guðlegu visku, sem skapar alheiminn og glæðir flóruna, fánuna og einnig mennnina lífsanda og skilningi. Verkið sem er enn í vinnslu snýst því um að draga fram minningu hennar og að skrá skuli nafn hennar á spjöld sögunnar og veita því svo út í alheiminn.“

Að lokum sagði Björg Eiríksdóttir frá myndbandsverkinu Skyn (2025) og svaraði spurningum gesta, sem komu einnig með sínar hugleiðingar um hlutverk listarinnar í umhverfiskreppum samtímans.

Myndir: Galadriel González Romero

Deila á samfélagsmiðlum