Fræðimenn

Ana Stanićević

Ana Stanićević er doktor í menningarfræði frá Háskóla Íslands og lektor í norsku og norskum bókmenntum við Háskólann í Helsinki. Hún hefur meðal annars rannsakað áhrif vistrýni og femínískrar vistrýni á samtímabókmenntir Norðurlanda og norræn örforlög.

Katarina Leppänen

Katarina Leppänen er prófessor við bókmennta-, hugmynda- og trúarbragðadeild Háskólans í Gautaborg. Rannsóknir hennar sameina hugmyndasögu og bókmenntafræði. Nýlegar fræðigreinar hennar má meðal annars finna í The Routledge Handbook on Ecofeminism and Literature og í Storying the Ecocatastrophe: Contemporary Narratives and the Environmental Collapse (ritstj. Duffy & Leppänen, 2024). Katarina ritstýrði Creative Responses to Environmental Crises in Nordic Art and Literature ásamt Auði Aðalsteinsdóttur (2025). 

Auður Aðalsteinsdóttir

Auður er rannsóknarlektor í umhverfishugvísindum og forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit. Hún hefur stundað rannsóknir á íslenskum bókmenntum og listum frá sjónarhorni vistrýni og er m.a. höfundur bókarinnar Hamfarir í bókmenntum og listum (2023).

Michael Kjær

Michael Kjær er lektor við PASS, rannsóknasetur aðgerðamiðaðrar listfræði (practice-based art studies) við Háskólann í Kaupmannahöfn. Rannsóknir hans beinast að þróun og ástundun fagurfræðilegra vettvangsrannsókna. Michael starfar með þverfaglegum hópi listafólks og vísindamanna út frá þeim forsendum að Jörðin feli í sér fagurfræðilega þekkingu. Hann er meðal frumkvöðla UArctic-samstarfsnetsins Extremes, sem rannsakar öfgafullt umhverfi á norðurslóðum og víðar sem dæmi um jaðaraðstæður lífs á Jörðu.